Hvað er fjármálalæsi fyrir þér?
Það er undirstaða þess að geta stjórnað eigin efnahag farsællega. Fjármálalæsi er hæfileikinn að skilja þá þætti sem hafa áhrif á eigin fjármál, greina og hafa áhrif á þá.
Hversu mikilvægt heldurðu að það sé að fólk temji sér góðan skilning á fjármálum?
Ég held að það sé mun mikilvægara en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Samfélagið sem við búum í, hvort sem okkur líkar það betur eða ver, er rekið á grundvelli peninga. Það er rosalega erfitt að ætla sér að komast eitthvað í lífinu án einhverra aura.
Þess vegna er svo mikilvægt, sérstaklega fyrir okkur unga fólkið sem höfum ekki mikið á milli handana, að við séum sífellt vakandi fyrir því sem við gerum við þá fjármuni sem við eigum.
Þitt fjármálaráð?
Þau eru þrjú:
- Forgangsraðaðu! Ég veit þig langar í þessar buxur en þær eru lítils virði ef þú sveltur í staðinn.
- Gerðu það bara sjálfur! Hvort sem það er að elda sjálfur eða sauma eigin flíkur þá er ótrúlegt hvað hægt er að spara með smá frumkvæði og sköpunargleði.
- Endurnýttu! Finndu nýtt líf handa gömlum hlutum. Sparaðu þér tíuþúsundkallana í nýtt sófasett og athugaðu hvort amma og afi eiga ekki eitt gamalt og gott. Gömul föt eru sífellt að komast aftur í tísku og alltaf hægt að finna eitthvað skemmtilegt á fatamörkuðum.
