Fjármálalæsi er að hafa skilning á helstu atriðum fjármála, hvernig vextir, verðbólga og svoleiðis hafa áhrif á fjármálin þín þannig að þú getir gert góðar áætlanir til framtíðar með fjármál þín.
Gott fjármálalæsi hjálpar þér að taka réttar ákvarðanir í fjármálum og fá góða yfirsýn yfir í hvað þú getur notað peningana, hvað er mikilvægt að varast og hvað er nauðsynlegt að hafa í huga til að koma sjálfum sér ekki í vandræði.
Af hverju er mikilvægt að fólk temji sér góðan skilning á fjármálum?
Svo þú getir tekið réttar ákvarðanir í fjármálum og komið í veg fyrir fjárhagsleg áföll. Með góðum skilningi er betra að búa sér góða fjárhagslega framtíð.
Einhver ráð sem þú vilt gefa?
Byrja á því að safna fyrir þeim hlutum sem þig langar í eða vantar í staðin fyrir að taka lán fyrir öllu mögulegu. Það er betra að safna og fá vexti en taka lán og borga það margfalt til baka.

