Banki er peningastofnun af sérstakri gerð sem tekur við peningum til ávöxtunar og lánar þá aftur gegn vöxtum. Bankar er nauðsynlegir í því hagkerfi sem er ríkjandi í heiminum í dag.
Banki hefur það hlutverk að gæta peninga þeirra sem lagt hafa þá inn, það er sparifjáreigenda, og ávaxta peningana þannig að hægt sé að greiða fólki vexti á innistæður sínar. Þetta gerir bankinn með því að lána peninga út aftur á tilteknum vöxtum til dæmis til fyrirtækja eða einstaklinga.
Mikilvægt er að þeir sem leggja peninga sína inn í banka gerir þá kröfu að bankinn fari gætilega með þá.
