Í dag hafa greiðslukortin tekið yfir sem almennur greiðslumáti. Debetkort er í raun staðgreiðslukort. Með því að nota það greiðir þú vöruna strax. Greiðslukortafyrirtækið sér um að millifæra upphæðina af reikningnum þínum yfir á reikning þess sem þú verslar við, gegn þóknun. Öfugt er farið með kreditkortin en þar lánar bankinn þér fyrir viðskiptunum og sendir þér síðan reikning mánaðarlega.
