Peningalán

Peningalán

Peningalán eru einfaldlega lán eins aðila til annars. Flest lán eru afgreidd í gegnum fjármálastofnanir, oftast banka.

Algengustu lánin eru innlán, þegar fólk leggur „peningana sína inn í banka“. Í raun er fólk þá að lána bankanum peninga til geymslu og fær vexti í greiðslu fyrir vikið.

Útlán er hins vegar þegar banki lánar út samkvæmt ýmsum skilmálum og með vöxtum.