Sparnaður er sá hluti tekna (einstaklings eða- félags) sem ekki er ráðstafað strax til neyslu. Á ensku þýðir sparnaður savings, sem beinþýtt má segja að sé „björgun“ – að bjarga fé frá eyðslu. Það er mjög skynsamlegt að spara og margborgar sig eins og dæmin sanna.
Svo notað sé myndrænt dæmi úr íslensku þjóðfélagi má ímynda sér bónda sem notar sumarið til að heyja og setur síðan allt heyið í hlöðuna. Hann gefur síðan kindunum sínum heyið jafnt og þétt allan veturinn á eftir en passar að allar kindurnar fái nægan skammt.
Kindurnar gætu samt klárað allt heyið á einum mánuði ef bóndinn hleypti þeim í það. Það gerir hann þó ekki vitandi það að hann vill ekki steypa sér í skuldir með því að redda sér meira heyi annars staðar og ofala kindurnar. Bóndinn hefur því gert áætlun fram í tímann sem tryggir honum góða afkomu.
