Sverre Jakobsson – handknattleiksmaður

Sverre Jakobsson – handknattleiksmaður

Hvað er fjármálæsi fyrir þér?

Fjármálalæsi fyrir mér er ákveðin grunnþekking á fjármálum sem nýtist einstaklingum við flestar þær ákvörðunartökur sem snúa að fjármálum. Fjármálalæsi er að skilja hvaða skuldbindingu einstaklingur er að taka á sig og að geta borið saman þá kosti sem standa manni til boða.

Það að vera fjármálalæs þýðir ekki að einstaklingur taki alltaf rétta ákvörðun, heldur að hann sé betur til settur og meðvitaðari um hvað liggi að baki ákvörðuninni. 
Fjármálalæs einstaklingur á að geta tekið þátt í almennri samfélagsumræðu um fjármál, hann á að skilja grunnhugtök fjármála og vera vel í stakk búinn til að sjá um sín fjármál.

Margir vilja meina að það hafi aldrei verið mikilvægara en í dag að afla sér þekkingu á þessu sviði. Margt er til í því og þess vegna tel ég brýnt að auka fræðslu og upplýsa fólk.

Af hverju er mikilvægt að fólk temji sér góðan skilning á fjármálum?

Það er gríðarlega mikilvægt að einstaklingar búi yfir nægilegri fjármálaþekkingu vegna þess að ákvarðanir sem snúa að fjármálum eru oft á tíðum þær stærstu sem við tökum á lífsleiðinni. Þær þurfa því að vera vel ígrundaðar og ákveðin þekking þarf því að vera til staðar.

Einstakling, sem skortir læsi á fjármál, getur lent í því að taka á sig mikla og óþarfa áhættu án þess að vita að því. Grunnþekking á fjármálum leiðir því af sér betri og meðvitaðri ákvarðanir.

Hefur þú einhver ráð til fólks í þessum málum?

Það sem maður getur ráðlagt fólki varðandi fjármál er að kynna sér alla valkosti og möguleika vel áður en endaleg ákvörðun er tekin. Ef næg þekking er ekki til staðar, þá má nýta sér netið, leita til vina og ættingja eða jafnvel fá ráð hjá viðskiptabankanum sínum. Ég skora á alla að kynna þér þessi mál ítarlega.

Hluti að því að standa á eigin fótum og sjá um sín mál sjálfur er að vera fjármálalæs. Því tel ég nauðsynlegt að ná til ungs fólks og efla fræðsluna meðal þeirra.