Verðbólga er þegar almennt verðlag hækkar í sífellu yfir langt tímabil. Hagstofa Íslands sér um að taka mánaðarlega saman meðalverð á nauðsynlegum vörum og þjónustu. Það er reiknað í mismunandi vísitölur eftir ýmsum flokkum en vísitala er mælitala sem sýnir breytingu á (verð) gildi á tilteknum tíma.
