Vextir er í raun leigugjald á peningum. Þegar banki lánar einstaklingi tiltekna peningaupphæð leggur hann vexti á upphæðina sem í raun og veru er leigugjald fyrir afnotum einstaklingsins af peningnum.
Að sama skapi býður banki upp á vexti á tiltekna peningaupphæð sem einstaklingur leggur inn til geymslu í banka. Þá er einstaklingurinn í raun og veru að lána bankanum peninga og fær til baka leigugjald í formi vaxta.
Vextir geta verið mjög mismunandi eftir aðstæðum og hvers eðlis lán eru. Til dæmis eru alltaf mjög háir vextir á yfirdráttarlánum því bankinn tekur í meiri áhættu með því að lána strax til skamms tíma.
Í fréttum er oft talað um stýrivexti Seðlabankans. Þar sem Seðlabankinn gefur út peninga getur hann ákvarðað vexti þeirra til bankanna sem sýsla með peningana og þannig haft áhrif á vaxtakjör þeirra.
