Húsaleiga

Húsaleiga

Hvernig maður leigir húsnæði?

Það er mikilvægt að gera skriflegan samning þegar við leigjum húsnæði. Skriflegur samningur tryggir réttindi þín ef eitthvað kemur upp á.

Húsaleigusamningur er annað hvort tímabundinn eða ótímabundinn. Uppsagnarfrestur er yfirleitt þrír mánuðir á ótímabundnum samningum en yfirleitt er ekki hægt að segja upp tímabundnum samningum fyrr en þeir renna út.

Mikilvægt er einnig að þinglýsa samningum til að tryggja réttindi þín enn betur. Aðeins þeir sem eru með þinglýsta samninga geta fengið húsaleigubætur. Samningum er þinglýst hjá sýslumönnum í því embætti sem leiguhúsnæðið er í. Ef þú leigir til dæmis íbúð í Kópavogi ferðu til sýslumannsins í Kópavogi.

Hvernig virka húsaleigubætur?

Flestir sem búa í leiguhúsnæði eiga rétt á húsaleigubótum. Til þess að eiga rétt á húsaleigubótum þá þarf umsækjandinn að eiga lögheimili í bæjarfélaginu þar sem íbúðin er leigð.

Námsmenn eru þó undanþegnir þessari reglu. Ef námsmaður með lögheimili á Egilsstöðum leigir íbúð í Reykjavík á meðan hann er í skóla sækir hann um húsaleigubætur í sínu heimasveitarfélagi, það er að segja Fljótsdalshéraði.

Einnig er nauðsynlegt að þinglýsa leigusamningnum og að leigusamningurinn sé til að minnsta kosti 6 mánaða svo hægt sé að fá húsaleigubætur. Til þess að sækja um húsaleigubætur þarf maður að skila umsókninni í sveitarfélagið sem sá sem leigir kemur frá. Endurnýja þarf umsóknina einu sinni á ári.

Nánari upplýsingar um húsaleigu og húsaleigubætur og nauðsynleg fylgigögn með umsókn um húsaleigubætur er meðal annars hægt að nálgast inn á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins, http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/