Sparnaðarráð til framhaldsskólanema
- Notaðu strætó og sparaðu bílinn sem kostar mikið í rekstri.
- Enn betra er að labba þar sem það kostar ekkert og er góð heilsurækt.
- Taktu með þér nesti í skólann í staðinn fyrir að kaupa tilbúinn mat.
- Hugsaðu þig um í þrjá daga ef þú ætlar að kaupa eitthvað sem kostar meira en 5.000 krónur.
- Fáðu tilboð í tryggingar á bílnum ef þú átt bíl.
- Notaðu afsláttarmiða og leitaðu að tilboðum.
- Athugaðu hvort þú getur fengið íþrótta-, sjúkraþjálfunar-, gleraugnastyrk o.s.frv. hjá stéttafélaginu þínu.
- Sendu SMS á netinu.
- Alls ekki taka yfirdrátt. Það er rándýr „lausn.“
- Fylgstu vel með innistæðunni á reikningnum þínum. Það kostar mikið að fara yfir á kortinu og borga FIT kostnað.
- Slepptu því að byrja reykja… ef þú reykir skaltu hætta.
Leiðir til að eignast pening hraðar
- Taktu ákveðið hlutfall af laununum þínum um hver mánaðamót og leggðu inn á hávaxtareikning. Þannig lætur þú peningana vinna fyrir þig.
- Skoðaðu vexti á innlánsreikningum og veldu þann vaxtahæsta.
- Borgaðu í viðbótarlífeyrissjóð. Ef þú borgar t.d. 10.000 kr. á mánuði í viðbótarlífeyrissjóð þá borgar vinnuveitandinn þinn 5.000-10.000 kr. á móti. Þannig getur þú tvöfaldað upphæðina á auðveldan hátt.
Ef þú veist um fleiri góð ráð skaltu senda þau á suf@suf.is og við birtum þau á síðunni eins fljótt og auðið er.
