Ungt framsóknarfólk ætlar að nota aprílmánuð í átak til þess að bæta fjármálalæsi ungs fólks á Íslandi. Við förum inn í framhaldsskóla landsins með fræðsluefni og bjóðum þér mögulega í létta spurningakeppni um kvöldið. Með því vonumst við til þess að opna augu ungs fólks fyrir því hversu mikilvægt það er að skilja og þekkja hina ýmsu hluti tengdum fjármálum.
Ef þú vilt taka virkan þátt í lífinu, eignast húsnæði, fara út í nám og geta notið lífsins án þess að hafa endalaust áhyggjur af peningum þá er fjármálalæsi eitthvað sem þú ættir að kynna þér. Breyttu sýn þinni á fjármál – vertu klárari en næsti maður – verum kynslóðin sem skilur og veit hvernig peningar virka.
Verkefnið er unnið fyrir tilstilli Evrópu unga fólksins (Youth in action) sem er ungmennaáætlun Evrópusambandsins. Áætlunin miðar meðal annars að því að efla virka og almenna þátttöku ungs fólks í þjóðfélaginu og í evrópsku samstarfi, sem og að gera ungt fólk meðvitaðra um lýðræðislegan rétt sinn til athafna.
